Ofnbakaðar kalkúnabringur

Mjög einföld og góð uppskrift fengin úr "Í eldhúsinu hennar Evu" http://www.visir.is/i-eldhusinu-hennar-evu—ofnbakadar-kalkunabringur/article/2014140109123

Hráefni

Kalkúnabringur

  • 1 kg kalkúnabringa
  • 3 dl vatn
  • 1 stk kjúklingateningur
  • smjör
  • kalkúnakrydd
  • salt og pipar

Sveppasósa

  • 250 g blandaðir sveppir
  • 5 dl rjómi
  • 2 dl soð
  • smjör
  • 1 tsk rifsberjasulta eða sólberjasulta
  • salt og pipar

Sætkartöflumús

  • 600 g sætar kartöflur
  • 2 msk smjör
  • 120 g piparrjómaostur
  • salt og pipar

Rósakál

  • 500 g ferskt rósakál
  • 100 g beikon
  • 1½ dl rjómi
  • salt og pipar

Waldorfsalat

  • 2 stk græn epli
  • 1½ stk sellerí
  • 25 stk græn vínber
  • 1 dós sýrður rjómi
  • 3 msk þeyttur rjómi
  • 2 dl valhnetur (þurristaðar á pönnu)
  • súkkulaði (smá til að strá yfir)

Aðferð

Kalkúnabringur

  • Hitið smjör á pönnu, kryddið bringuna með kalkúnakryddi, salti og pipar. Brúnið bringuna á öllum hliðum á pönnunni í örfáar mínútur.
  • Setjið bringuna í eldfast mót.
  • Sjóðið vatn og leysið kjúklingatening upp í vatninu, hellið vökvanum í eldfasta mótið.
  • Gott er að setja smá smjörklípu ofan á bringuna áður en hún fer inn í ofn.
  • Bringan er sett inn í ofn við 90°C í 1,5 klst. Gott er að stinga kjötmæli í bringuna eftir 1,5 klst. Mælirinn ætti að sýna 73–74°C. Þá er bringan tilbúin, ef ekki þá þarf hún að vera svolítið lengur í ofninum.
  • Bringan þarf að hvíla þegar hún er komin út úr ofninum í 15–20 mínútur.

Sveppasósa

  • Skerið sveppina smátt.
  • Steikið sveppina upp úr smjöri í potti og kryddið til með salti og pipar.
  • Bætið síðan rjómanum saman við og leyfið sósunni að malla við vægan hita í nokkrar mínútur.
  • Bætið út í vatni og soðinu sem kom frá kalkúnabringunni, hellið vökvanum sem er í eldfasta mótinu og bætið út í sósuna.
  • Setjið smávegis af sultu saman við. Leyfið sósunni að malla svolítið lengur, smakkið auðvitað til og kryddið að vild.

Sætkartöflumús

  • Sætar kartöflur eru skrældar og skornar í svipað stóra bita.
  • Setja kartöflurnar í pott og vatn rétt látið fljóta yfir.
  • Suðan látin koma upp og soðið í 25–30 mínútur eða þar til að kartöflurnar eru orðnar mjúkar.
  • Vatninu er síðan hellt af.
  • Kartöflurnar stappaðar fínt með smjöri og bragðbættar með piparosti, salti og pipar.

Rósakál

  • Rósakálið er skolað, hreinsað og skorið í tvennt.
  • Sjóðið rósakálið í léttsöltu vatni í 2–3 mínútur.
  • Vatninu er síðan hellt af.
  • Setjið smjörklípu á pönnu, skerið beikonið í litla bita og steikið á pönnunni.
  • Bætið rósakálinu saman við beikonið og steikið í 5 mínútur við vægan hita.
  • Rjómanum er síðan bætt út á pönnuna og kryddað til með salti og pipar.
  • Leyfið rósakálinu og beikoninu að malla í rjómanum við vægan hita í nokkrar mínútur.

Waldorfsalat

  • Kjarnhreinsið eplin, flysjið og skerið í litla bita.
  • Skerið sellerí í litla bita.
  • Skerið vínber í tvennt.
  • Grófhakkið hneturnar og þurrristið á pönnu.
  • Pískið saman sýrðan rjóma og rjóma.
  • Blandið síðan öllu saman í skál og sáldrið smá súkkulaði yfir í lokin.
  • Geymið í kæli þar til salatið er borið fram.